Ársreikningur Íslandshótela hf. fyrir árið 2024
Stjórn Íslandshótela hf. staðfesti á fundi í dag, föstudaginn 4. apríl 2025, ársreikning félagsins fyrir árið 2024. Ársreikningur félagsins hefur nú verið birtur.
Helstu lykiltölur ársins 2024 samanborið við 2023:
Á árinu 2024 störfuðu að jafnaði 647 manns hjá félaginu miðað við heilsársstörf.
Bókfært virði eigna Íslandshótela hækkaði um 3.573,5 m.kr. eftir að virðismat á fasteignum félagsins var endurmetið, samkvæmt mati óháðs sérfræðings.
Félagið er sem fyrr í fararbroddi í ferða- og gistiþjónustu hér á landi og heldur áfram að leita vaxtartækifæra í greininni. Íslandshótel hafa sett sjálfbærni í forgang, og öll hótel félagsins hafa nú hlotið Green Key vottun. Félagið skrifaði einnig undir Glasgow-yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsaðgerðir í ferðaþjónustu og fékk Umhverfisverðlaun Terra 2024 fyrir aðgerðir í endurvinnslu og úrgangsmálum. Um mitt síðasta ár tilkynnti stjórn félagsins að ákveðið hefði verið að falla frá fyrirhuguðu útboði hlutafjár í félaginu. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um hvort félagið stefni á skráningu síðar.
Stjórn leggur til að ekki verði greiddur arður vegna ársins 2024 og að afkoma ársins verði færð yfir til næsta árs.
„<>Áskoranir í ytra umhverfi settu sitt mark á rekstur Íslandshótela á síðasta ári en heilt yfir gekk reksturinn vel. Rekstrargrundvöllur félagsins var styrktur, fjárfest var í sjálfbærni og vaxtartækifæri nýtt, enda stefna Íslandshótela vel mótuð og framtíðarsýnin skýr. Íslandshótel eru í sterkri stöðu til að halda uppbyggingu sinni áfram, mæta áframhaldandi eftirspurn og áskorunum og styðja við vöxt <>ferðaþjón<>u<>stunnar<> á komandi árum,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela.
Ársreikningur félagsins er meðfylgjandi og er hann einnig að finna á heimasíðu félagsins, www.islandshotel.is/fjarfestar
Félagið er með skráð skuldabréf í Kauphöll Íslands og fylgir þeim reglum sem gilda um félög með skráða fjármálagerninga á skipulegum markaði. Meðfylgjandi er staðfestingarbréf frá Deloitte vegna skuldabréfaflokks IH140647.
Attachments